Brand Ethos

Blóm Í Eggi

Blóm Í Eggi. sérhæfir sig í að bjóða vörur sem stuðla að heilsu og velllíðan. Blóm Í Eggi ehf. er eitt elsta fyrirtæki á Íslandi sem sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu á heilsusamlegum og lífrænum matvörum, fæðubótarefnum, almennum og lífrænum snyrtivörum. Undanfarin ár hefur bæst mikið við það úrval sem Blóm Í Eggi býður upp á. Við leggjum mikið upp úr gæðum og leggjum áherslu á að stuðla að heildrænni vellíðan fyrir neytendur hvort sem um ræðir matvörur, vítamín, snyrtivörur, húðvörur eða annað.

Hlutverk Blóm Í Eggi: Við stuðlum að bættri heilsu almennings. Við vekjum athygli á heilbrigðum og ábyrgum lífsstíl. Við höfum hag neytenda ávallt að leiðarljósi.